Europass ferilskráin er undirstaða allra Europass skjalanna. Hún er byggð upp á sama máta á öllum tungumálum og auðveldar einstaklingum að sýna fram á hæfni sína.
Hver er ávinningurinn af því að nota Europass ferilskrána?
- Í Europass ferilskrána eru skráð fleiri atriði en í hefðbundinni ferilskrá. Þar er einnig skráð tungumálakunnátta, félags- og tæknileg færni, tölvukunnátta, listræn færni og önnur færni og hæfni sem fengist hefur annað hvort í gegnum starf eða menntun á vinnustað eða annars staðar.
- Europass ferilskrána má aðlaga að þörfum hvers og eins. Til dæmis er ólíklegt að ungur einstaklingur hafi jafn mikla reynslu og eldri maður og því er hægt að þurrka út úr eyðublaðinu það sem ekki á við.
- Europass ferilskráin er til á 25 tungumálum.
Sýnishorn af Europass ferilskránni (.pdf, 87 kb)
Tenglar á síður CEDEFOP
Hér er slóðin inn á síðu CEDEFOP. Þar eru öll Europass skjölin vistuð á fjölmörgum tungumálum.
Hér er hraðleið inn á gerð nýrrar ferilskrár á íslensku. Í efra horni hægra megin er hægt að velja önnur tungumál.
Hér er hraðleið á uppfærslu eldri ferilskrár á íslensku. Á sama hátt og fyrr má velja önnur tungumál.




