Europass starfsmenntavegabréf er staðfesting á því að einstaklingur hafi hlotið starfsþjálfun í öðru Evrópulandi.
Markmiðið með starfsmenntavegabréfinu er að hvetja fólk til að fara í starfsþjálfun í öðru landi og að stuðla að því að þjálfunin sé viðurkennd á milli landa.
Europass starfsmenntavegabréfið er eina viðurkenning sinnar tegundar í Evrópu og tilraun til að auðvelda fólki að rata milli hinna ólíku starfsmenntakerfa aðildarlanda verkefnisins. Europass tengist samstarfsáætlunum Evrópusambandsins, sérstaklega Leonardo da Vinci en það má einnig nýta við aðrar starfsþjálfunarleiðir eftir atvikum.
Þeim sem sækja vilja um Europass starfsmenntavegabréf er bent á að hafa samband við Europass skrifstofuna (ds@hi.is). Þeir fá þá send skjöl til útfyllingar fyrir hvern einstakling og númer fyrir hvert vegabréf.
Hverjir geta sótt um?
Stofnanir, skólar eða fyrirtæki sem senda fólk í mannaskipti og þjálfun milli landa geta sótt um starfsmenntavegabréfið fyrir þá einstaklinga sem taka þátt í mannaskiptunum, hjá skrifstofu Europass í því landi sem ferðast er frá.
Dæmi um starfsmenntavegabréfið á íslensku (.pdf, 68 kb)
CEDEFOP
Hér er slóðin inn á síðu CEDEFOP. Þar eru öll Europass skjölin vistuð á fjölmörgum tungumálum.





